Eitt dáðasta og ástsælasta söngvaskáld þjóðarinnar, Bjartmar Guðlaugsson er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld og tekur þar sjálfan sig til kostanna svo um munar.
Bjartmar rekur æsku sína austur á fjörðum og eilífan ótta ungslingsáranna við að pabbi hans skilaði sér ekki heim eftir síðustu sjóferð, en þess utan er afar áheyrilegt að heyra hann lýsa unglingsárunum í Eyjum þar sem hann passaði engan veginn inn í skólakerfið, en þar varð það honum að lokum til happs að mentorar á borð við Pál heitinn Steingrímsson, kvikmyndagerðarmann og Sigmund heitinn Jóhannsson, teiknari og uppfinningamaður uppgötvuðu ómælda listhæfileika stráksins.
Hann rekur sögu margra laga sinna í þættinum, svo sem tilurð Sumarliði er fullur og senuna sem bjó til lagið þannig týnist tíminn, en lagið varð til úti í Færeyjum við einstakar aðstæður, en Bjartmar sjálfur er hálfur Færeyingur.
Hann talar um meðvinda sína og mótvinda af einstöku hispursleysi, svo sem flogaveikina sem uppgötvaðist á fullorðinsaldri og var skýringin á erfiðleikum hans í æsku, en þess utan fjallar hann um óregluna á fyrri tíð sem hann lýsir svo að stundum hafi hann vissulega lent í lausamölinni.
Þátturinn sýnir umfram allt hvað Bjartmar er mikil manneskja, en hann hefst klukkan 20:30 í kvöld.