Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknar ældi því út úr sér á fundi með framsóknarmönnum á Ísafirði í vikunni að “ríkisstjórnarflokkarnir væru að skoða möguleikann á kosningum í haust.” Þetta er í hrópandi andstöðu við það sem margoft hefur verið lofað. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur margítrekað að kosningar fari fram í haust. Hann hefur þó vikið sér undan því að nefna kjördag og taka þannig af öll tvímæli.
Stjórnarandstaðan og þjóðin gruna ríkisstjórnina um græsku. Traust til hennar er takmarkað. Ríkisstjórnin vill ekki sjá kosningar í haust. Hún vill halda í valdastóla sína eins lengi og sætt er. Ásmundur Einar ítrekaði á fundi sínum fyrir vestan að ríkisstjórnin hefði umboð til að sitja fram í apríl á næsta ári.
En er það svo? Formlega séð já. En eftir það sem á undan er gengið og eftir þau hátíðlegu loforð sem forsvarsmenn stjórnarflokkanna hafa gefið þá er ekki í boði að víkjast undan kosningum í október nk.
Ljóst er að margir í þinglið flokkanna vilja alls ekki kosningar. Framsóknarmönnum er einkum ljóst að fæstir þeirra 19 þingmanna sem kosnir voru á þing fyrir 3 árum eiga afturkvæmt þangað eftir næstu kosningar. Framsókn getur varla vænst þess að fá fleiri en 6 þingmenn næst þegar verður kosið. Það þýðir að margir missa þessa þægilegu innivinnu. Þar á meðal Ásmundur Einar Daðason sem talaði við félaga sína á Ísafirði með þeim hætti að ekki stæði til að kjósa. Fjórir úr þingflokki Framsóknar hafa stundað háskólanám meðan þeir hafa verið á launum í þinginu. Þeir geta þá einbeitt sér að náminu eftir kosningar þó svo virðist að þingstörfin hafi ekki truflað námsframvindu þeirra mikið.
Hræðslan við kosningar er ekki bara bundin við þingmenn sem sjá fram á atvinnumissi. Hún er ekki síður hjá forystumönnum og ráðherrum flokkanna sem sjá fram á að missa völdin. Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn nærast á völdum. Þeir þrífast afar illa án valda og þeir geta ekki sinnt hagsmunagæslu sinni fyrir hina fáu og ríku, einkum í sjávarútvegi og landbúnaði, nema vera við völd. Eins og stjórnmálaástandið er nú á Íslandi bendir ekkert til að núverandi ríkisstjórn haldi velli eftir kosningar. Annar flokkanna eða jafnvel báðir munu hverfa úr ríkisstjórn og hefja óskemmtilega eyðimerkurgöngu þeirra sem dæmast til stjórnarandstöðu á Alþingi.
Hver maður getur séð að stjórnarflokkarnir velta nú fyrir sér í örvæntingu hvernig þeir geti svikið hátíðleg loforð um haustkosningar og sitið sem fastast út kjörtímabilið. Draumurinn var alltaf sá að ljúka við eitthvað af loforðunum um minnkun hafta og innleysingu fjármuna frá slitabúum gömlu bankanna þannig að unnt yrði að ausa peningum í vinsæl gæluverkefni samkvæmt fjárlögum ársins 2017. Haustkosningar munu koma í veg fyrir það þar sem fjárlög verða ekki afgreidd fyrr en í desember á þessu ári og þá á vegum nýrrar ríkisstjórnar.
Þegar 22 þúsund manns söfnuðust saman í námunda við Alþingishúsið með litlum fyrirvara til að knýja á um breytingar, þá skyldi þingheimur alvöruna. Engan langaði í nýja búsáhaldabyltingu til að verja Sigmund Davíð falli. Honum var því fórnað með hraði. Hann lagði sjálfur drög að þeirri fórn með háttsemi sinni og því var skrefið auðvelt fyrir stjórnarflokkana. Krafist var kosninga strax. En til að sefa réttláta reiði almennings í landinu var heitið haustkosningum. Það voru hátíðleg loforð Bjarna Benediktssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar.
Reyni þeir að svíkja það og reyni þeir einhver klækjabrögð til að komast undan kosningum í síðasta lagi í október, þá mega þeir búast við því að kjósendur taki málin í sínar hendur. Það mættu 22 þúsund manns á vettvang með litlum fyrirvara. Ef þeir sýna tilburði til undanbragða og svíkja þjóðina um kosningar í haust, þá munu tvöfalt fleiri kjósnedur koma á vettvant og gera stjórnarflokkunum það ljóst að þeir verði einfaldlega bornir út úr Alþingishúsinu og efnt til kosninga. Varla langar þá að standa frammi fyrir 40 þúsund manns sem gerðu slíkar kröfur á hendur þeim.
Þrátt fyrir drauma margra stjórnarliða um að svíkja loforð um kosningar, þá verður kosið í haust.
Hvorki Bjarni Benediktsson né Sigurður Ingi Jóhannsson vilja hrinda af stað borgarastyrjöld á Íslandi. Völdin eru ekki svo mikils virði.