Láttu baða andlitið

Það getur bæði verið tímafrekt og kostnaðarsamt að fara í heilnudd á einhverri stofunni úti í bæ – og af því að það er líka eitthvað sem margir hafa prófað oftar en einu sinni þá er upplagt að reyna eitthvað nýtt sem slakar á vöðvum líkamans. Andlitsnudd er frábær leið til að slaka á um leið og ásjóna manns er nærð og nostruð af fingrum fram. Það er einna líkast því að fara yfir í annan heim að setjast í stólinn hjá góðum fagmanni sem kann jafn mikið á andlit manns og efni. Og vel að merkja; andlitsbað er ekkert frekar fyrir konur en karla, það er einfaldlega fyrir alla sem vilja gera vel við sig fyrir tiltölulega sanngjarnan pening úr veski manns.