Einhverju sinni var haft á orði að eitt örðu fremur gerði Ísland að byggilegu landi, en það væru sundlaugarnar. Það er mikið til í þessu, enda þarf Íslendingurinn ekki annað en að horfa í augu útlendings ofan í íslenskri sundlaug til að átta sig á þvílík hugljómun það er að kúra í hverahitanum. Alltof margir halda að þeir séu ekki í laginu til að sýna sig fáklæddir í sundi, en það er bábilja. Sundlaugarnar eru fullar af allskonar fólki af öllum stærðum - og enginn er að pæla í því, enda flestir með lokuð augun ofan í þessari ódýru sæluvist sem sundið er.
Farðu oftar í sund
Fleiri fréttir
Nýjast