Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, greindi frá orðrómi um að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, ætli að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, á vefsíðu sinni eiríkurjónsson.is fyrir nokkrum dögum.
Eiríkur segist hafa fyrir þessu öruggar heimildir og óhætt er að segja að hann viti hvað hann syngur í þessum efnum, enda ævisöguritari Davíðs. Eiríkur ræddi framboð Davíðs við Tóta í síðdegisþættinum á útvarpi Hringbrautar FM 89.1 í gær og gekk svo langt að fullyrða að Davíð verði næsti forseti landsins.
Eiríkur sagðist hafa það úr innsta hring að Davíð væri fyrir löngu búinn að ákveða þetta og biði aðeins eftir réttri tímasetningu og hann kunni þá list að „láta lýðinn bíða.“
„Ég veit hvernig línurnar liggja og þekki marga þarna í kring,“ segir Eiríkur sem árið 1989 skrifaði ævisögu Davíðs, þegar hann var á hátindi borgarstjóraferils síns, í óþökk Davíðs sjálfs. Bókin hafði vinnutitilinn Beysi kemur í bæinn með vísan til gælunafns Davíð sem kom sem stormsveipur frá Selfossi inn í íslenskt stjórnmálalíf.
Eiríkur segir að mörgum stuðningmanni Davíðs finnist hafa verið farið illa með hann í hruninu. „Hann var settur eitthvert í útlegð og ég veit að hann er ekki sáttur við svona meðferð. Beysi hefur ekki sagt sitt síðasta. Í raun er þetta eina tækifærið sem hann hefur til að rísa upp og endurnýja sjálfan sig í hugum landsmanna.“
Eiríkur segir í raun alla geta sinnt forsetaembættinu séu þeir „ekki draugfullir alla daga“ og að þjóðin muni, eins og með aðra forseta sína, hefja Davíð til skýjanna þegar hann verður búinn að sigra kosningarnar.
Hlusta á samtal Eiríks og Tóta á Hringbraut FM 89.1