Búvörusamningarnir opna ný pólitísk tækifæri

 

Pólitískar hliðar búvörusamninganna eru um margt áhugaverðar.

Ein þeirra lokar Sjálfstæðisflokkinn af sem haftaflokk í landbúnaðarmálum í tíu ár. Það er aftur á móti ekki breyting fyrir Framsókn því stefna hennar er að vera þar.

Önnur hlið samninganna opnar að sama skapi nýja möguleika fyrir flokka sem ekki eru ábyrgir fyrir þeim í kosningum að ári. Einn þeirra eða fleiri geta einfaldlega gefið kjósendum kost á  að velja þá stefnu í landbúnaðarmálum sem síðasti  landsfundur Sjálfstæðisflokksins  markaði.

SAMNINGARNIR SENNILEGA EKKI BINDANDI Í full TÍU ÁR

Sterk rök má færa fram fyrir því að búvörusamningarnir séu ekki lagalega bindandi í full tíu ár. Við mat á því þarf að skoða bæði ákvæði í stjórnarskrá og búvörulögum. 

Meginregla búvörulaganna er að samninga skuli gera til eins árs. Heimilt er að gera þá til lengri tíma. Eðlilegt er að túlka þá heimild þröngt með hliðsjón af umfangi samninganna og því skýra stjórnarskrárákvæði að Alþingi fer með fjárlagavaldið en ekki ráðherrar.

Eigi að síður er augljóst að nokkur vafi leikur á því til hversu langs tíma megi gera búvörusamninga. Flest bendir þó til að ráðherrarnir sem undirrituðu tíu ára samningana hafi farið út fyrir stjórnskipulegt umboð sitt. Svo gæti farið að dómstólar þyrftu að skera úr um það álitaefni hvar mörkin liggja. Fyrst væri þó rétt að ríkisendurskoðun léti álit sitt í ljós á þeirri hlið málsins. Í raun bregst hún hlutverki sínu geri hún það ekki að eigin frumkvæði.

Þótt stjórnarflokkarnir séu að öllum líkindum ekki að lögum bundnir við samningana í full tíu ár eru þeir að sjálfsögðu bæði pólitískt og siðferðilega geirnegldir við skuldbindingar þeirra í allan þann tíma. Aðrir flokkar ættu hins vegar að geta breytt því striki sem siglt er eftir þegar líður á næsta kjörtímabil og jafnvel strax að kosningum loknum standi vilji til þess.

LANDSFUNDARÁLYKTUN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS SNÚIÐ Á HAUS

Þetta veldur Framsókn litlum eða jafnvel engum pólitískum erfiðleikum. Samningarnir kollvarpa hins vegar nýsamþykktri stefnu Sjálfstæðisflokksins í öllum efnisatriðum.  Um formið lýsti landsfundur flokksins hins vegar yfir stuðningi við langtímasamninga án tillits til þeirra takmarkana sem búvörulög og stjórnarskrá setja í þeim efnum.

Efnislega segir hins vegar í ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins að stefna beri að því að draga úr opinberum stuðningi við landbúnað og vinna að því að hann geti starfað á markaðsforsendum.  Jafnframt er lýst yfir stuðningi við gagnkvæman markaðsaðgang til að bæta sóknarfæri fyrir landbúnaðinn og auka valfrelsi neytenda.

Þessari stefnu getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki fylgt eftir næstu tíu árin. Það eru sterkir pólitískir fjötrar í ljósi þess að núverandi kerfi hefur gengið sér til húðar. Ákall um nýja hugsun, breytingar og ríkara viðskiptafrelsi eru bæði í þágu bænda og neytenda. En því ákalli getur flokkurinn ekki svarað eins og málum er komið.

Þetta skapar öðrum flokkum ótrúlegt sóknarfæri aðeins ári fyrir kosningar. Fróðlegt verður að sjá hvort og hvernig það verður nýtt. Ekki er nóg að koma fram með gagnrýni þótt hún eigi fullan rétt á sér. Þeir sem ætla að grípa gæsina og notfæra sér tíu ára fjarveru Sjálfstæðisflokksins frá breytingum verða að leggja fram ábyrga og skynsamlega útfærða áætlun um aðlögun landbúnaðarins að nýjum veruleika. Það hefur enginn gert enn.  

TVENNS KONAR HÆTTA FYRIR BÆNDUR

Þótt bændur fái stórauknar verðtryggðar greiðslur með þessum samningum fela þeir í sér ákvörðun um tíu ára stöðnun.

En það fylgir þeim önnur og jafnvel meiri hætta fyrir bændur. Hún er sú að vegna tímalengdar samninganna geti neytendur og kjósendur hafa misst þolinmæðina þegar loks kemur að óhjákvæmilegum breytingum. Þá er hætt við að ekki verði hjá því komist að innleiða þær með meiri hraða en æskilegt væri.

Í þessu ljósi er mjög mikilvægt að samningarnir verði teknir upp þegar að afstöðnum næstu kosningum. Taki bændur vel í það geta þeir leyst Sjálfstæðisflokkinn úr þeirri klípu sem þingmenn hans hafa sett hann í.

Það væri bæði sanngjarnt gagnvart Sjálfstæðisflokknum og hyggilegt fyrir bændur vegna þeirrar þróunar sem fyrirsjáanleg er á þessu sviði.