Það er undursamleg tilfinning að standa einhvers staðar lengst úti í náttúrunni, fjarri ys og þys hversdagslífsins og upplifa sólmyrkva. Og hans er einmitt hægt að njóta síðar í þessum mánuði, nákvæmlega þann tuttugasta mars, en þá fer blessað tunglið fyrir sólu svo úr verður eitthvert glæslilegasta sjónarspil sem blessuð náttúran hefur upp á að bjóða. Sólmyrkvi var auðvitað á öldum áður göldrum líkastur og vart er hægt að telja allt það upp sem hann átti ekki að gera fyrir menn og konur; auka þeim frjósemi og færa þeim auð, tryggja þeim langlífi og vitaskuld heilsuna og þá ekki síður kvenhylli og fluggáfur. Sólmyrkvi var þar fyrir utan tilefni margs konar trúarhátíða fyrr á öldum og er það ennþá út um lönd og strönd. Já, sumsé, búðu þig undir öll herlegheitin á himninum sem ekkert kosta.
Búðu þig undir sólmyrkva
Fleiri fréttir
Nýjast