Brynjar Níelsson fæddist þegar Viðreisnarstjórnin var eins árs árið 1960. Brynjar er hæstaréttarlögmaður og nú fimmti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Norður og hefur setið fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Alþingi frá árinu 2013. Brynjar er áberandi í umræðum um öll dægurmál enda er hann Pressupenni. Brynjar er í senn Pessuálitshafi og Pressuálitsgjafi og er hann sérlega eljusamur við skrif um meðal annars eftirköst bankakrakksins árið 2008 sem hann setur í sögulegt samhengi.
Ýmsum lögmönnum fannst furðulegt að Brynjar skyldi gerast stjórnmálamaður en sú undrun stafar af misskilningi. Reynsla sýnir og sannar að húðlatir lögmenn þessarar manngerðar henta Sjálfstæðisflokknum vel og eru sigurstranglegir.
Ég átti í fyrstu bágt með að skila hvað erindi Brynjar á í Sjálfstæðisflokkinn því ég sá Brynjar sem mann á hugmyndafræðilegu ferðalagi í leit að staðfestu og hana finnur Brynjar ekki í Sjálfstæðisflokknum. Mér er nú orðið ljóst að Brynjar kann vel við að vera bara áskrifandi launa sinna í notalegri innivinnu í steinkumbaldanum við Austurvöll fyrir Sjálfstæðisflokkinn því sá flokkur gerir ekki annað en að slaka á öllum stefnumálum sínum í þágu tíðarandans. Rétt eins og Brynjar Níelsson.
Brynjar er orðinn hlutgengur atvinnustjórnmálamaður á mælikvarða flokkssystkina sinna og ekur um í farkosti Sjálfstæðisflokksins en ákveður hvorki hraðann né stefnuna. Brynjar er svo gæfusamur að kostir atvinnustjórnmálamannsins mega sín ólíkt meira í fari hans en gallarnir.
Brynjar kann prýðilega við að vera með höfðingjum og blandar ekki aðeins geði við almúgan til að áskotnast atkvæðin. Hann er fús til allrar þjónustu - nema staðfestunnar og málafylgjunnar og baráttunnar og hann er freistigjarn og sérhlífinn og er þar með tákrænn fulltrúi íslensku borgarastéttarinnar í kostum henna og göllum. Brynjar veldur hvorki vonbrigðum þeirra sem gera til hans miklar kröfu né þeirra sem gera engar kröfur til hans.
Brynjar á ekki heima á Alþingi en þar líður honum vel í hægu sæti löggjafarsamkomunnar og finnst hann meiri maður af vistinni þar. Brynjar er gæfumaður þó hamingja hans sé sprottin af tilviljun fremur en stórtíðindum.
Brynjar Níelsson var kosinn á þing af góðlátri vorkunsemi þeirra sem kenna í brjóst um þennan skapmilda húðletingja.
Eitt besta dæmið um letina er að hann skyldi láta embættismenn í ráðuneytinu skrifa skýrsluna um Víglundsrmálið fyrir sig og birta í sínu nafni. Sömu embættismenn og Víglundur beindi gagnrýni sinni að.