Af og til koma út á íslensku öndvegisbækur erlendar sem lesandinn fer ósjálfrátt að elska sakir þess sterka og vel skrifaða persónuleika sem bókin geymir. Það á við í tilviki Britt-Marie sem eftir 40 ára fúlt og glatað hjónaband vendir kvæði sínu í kross og byrjar að starfa á frístundaheimili fyrir börn og unglinga. Þar fær þráhyggja hennar fyrir skipulagi og snyrtimennsku nýja áskorun - og eins og gjarnan í öllum ævintýrum af þessu tagi tekur lífið óvænta stefnu sem ekki skal fjölyrða um hér. Þetta er einstaklega manneskjuleg og grátbrosleg saga í lipurri þýðingu Jóns Daníelssonar sem fær mann til að hlæja og gráta á víxl.
Brostu með britt-marie
Fleiri fréttir
Nýjast