Í stórskemmtilegum þætti kvöldsins á Hringbraut, Lóa og Lífið, ræðir Nína Dögg meðal annars um leikarasamfélagið á Íslandi og samkeppnina sem ríkir innan þessa litla heims.
Talað hefur verið um að mikill ágreiningur sé á milli samkeppnisaðila en Nína Dögg þvertekur fyrir það. Hún segir að allir vinni hörðum höndum saman að því að mynda heim leiklistarinnar hér á landi.
Þeir sem séu brjálaðir á Twitter þurfi bara knús.
Þátturinn Lóa og lífið er sýndur í kvöld kl. 20 á Hringbraut.