Bragðið finnurðu í ban thai

Varla er hægt að finna yfirlætislausari veitingastað á Íslandi en taílenska greiðaskálann Ban Thai á Laugaveginum, skammt austan við Hlemm, einmitt þar sem húsin skipta litum í átt að efri hluta þessa vegar sem konur fóru fyrrum til þvotta. Og þegar inn er komið á þetta prjállausa, lítilláta og nánast hæverska mathús er ekki laust við að sá sem þar kemur fyrsta sinni haldi að hann fái í besta falli skammlausan mat. En það er öðru nær – og skal hér fullyrt hressilega áður en lengra er haldið. Ban Thai er heimili og varnarþing þess bragðbesta austurlenska matar sem hægt er að finna í höfuðborg landsins. Hann er tignin hæsta í taílenskum mat á Íslandi.