Bassaleikarinn landskunni, Tómas R. Einarsson, sem var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Ferðalaginu nýverið blæs til útgáfutónleika vegna nýjastu afurðar sinnar, Bongó, sem er óður hans til kúbverskrar salsatónlistar af gömlu gerðinni.
Tómas lýsti ferðum sínum til Kúbu eins og honum einum er lagið í samtali þeirra Sigmundar Ernis og er slóðina að sjá hér að neðan, en eins og þar kemur fram heimsótti Tómas austurhluta eyjunnar í síðustu ferð sinni til þessa latónljúfa lands í Karabíska hafinu og saug þar í sig eina elstu útgáfu sölsunnar sem er að finna í Santíagó de Cuba, næstfjölmennstu borg eyjunnar og afraksturinn er að finna á umræddri plötu sem nefnist Bongó, en hún þykir hreint út sagt afbragð í eyra.
Og nú styttist í útgáfutónleikana sjálfa sem verða haldnir í Kaldalóni í Hörpu, þriðjudagskvöldið 29. nóvember kl. 20.30 þar sem Tómas sjálfur ásamt söngvurunum Sigríði Thorlacius og Bógómíl Font og Bongóbandinu munu að líkindum hrífa viðstadda upp úr skónum, jafnvel einhverju fleiru.
Bongó er ein mest selda platan hérlendis um þessar mundir og hefur hlotið mjög lofsamleg ummæli á fjölmörgum vefmiðlum latíntónlistarinnar þar sem innvígðir keppast við að hlaða hana lofi - og er hér til dæmis vitnað til virts spænsks músíkmiðils: \"Sannkallað snilldarverk... frábærar lagasmíðar, óaðfinnanlegur flutningur og söngur sem heldur manni föngnum... Ein af bestu plötum ársins!\"
Það er því von á góðu á þriðjudagskvöld.
http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/ferdalagid/tomas-r-einarsson-raedir-um-kubu/