Blómabindi, ítalskur og enskur hnútur og hvernig hægt er að klúðra samanbroti á brjóstvasa er meðal efnis í öðrum þætti af Herrahorninu sem er á dagskrá á Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld.
Þar kemur meðal annars fram að blómabindin séu að koma sterkt inn aftur eftir langa fjarveru og þá verður mönnum kenndar fjórar leiðir til samanbrots á klútum í brjóstvasa: blómið, jarlhetturnar, tindinn og þann slétta.
Herrahornið eru áhugaverðir þættir í umsjá Sigmundar Ernis Rúnarssonar fyrir alla karlmenn sem vilja girða sig almennilega í brók og líta út fyrir að vera fágaðir, flottir á því og virkilega móðins.