Í öllu því furðufréttaflóði sem dunið hefur á þjóðinni síðustu þrjá sólarhringa stal frétt á Vísi.is í gær um að Anna Sigurlaug, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, ætlaði að ferðast út í geim senunni.
Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar skrifaði fréttina sem hann byggði á viðtali við Virgin-auðmanninn Richard Branson í The Daily Mail, sem reyndist svo ekki alveg á rökum reist. Tóti heyrði í Jakobi Bjarnari í síðdegisþætti Hringbrautar á Fm 89.1 í gær og fékk söguna alla á bak við hið sannkallaða stjörnustríð sem blaðamaðurinn lenti í.
Jakob Bjarnar fékk ábendingu um að Daily Mail hefði eftir Richard Branson að forsætisráðherrafrú Íslands, Anna Sigurlaug, hefði pantað hjá honum far með næstu ferð út í geim.
„Gárungarnir fóru af stað og að velta fyrir sér hvort hjónaband þeirra væri svona óbærilegt að hún tæki sénsinn á þessu eða jafnvel að hún hafi verið að panta miða fyrir Sigmund Davíð sjálfan. Ætlað að gefa honum þetta í afmælisgjöf eða eitthvað,“ sagði Jakob Bjarnar á Hringbraut FM 89.1, léttur í bragði eftir strangan fréttadag.
Og þótt fréttin hafi ekki reynst alls kostar rétt þá hafði hún áhrif og varð til þess að Sigmundur Davíð rauf þögnina og tjáði sig á Facebbok eftir að hafa hundsað alla fjölmiðla landsins frá því að fram kom að hann ætlaði að stíga frá stóli forsætisráðherra.
„Þá rýfur hann þögnina og birtir langa færslu þar sem hann lýsir þessu sem algerri furðufrétt. Og vel að merkja, nú er ég náttúrlega bara millistykki. Ég er bara að greina frá þessu sem kom fram í viðtali Daily Mail við Branson,“ sagði Jakob Bjarnar og bætti við að hann væri eins blásaklaus og hugsast gæti.
„En Sigmundur Davíð fordæmir fréttaflutninginn og segir konu sína alls ekki vera að fara út í geim. Ég hugsa að engin blaðamaður í heimi hafi fengið að skrifa þessa fyrirsögn: FORSÆTISRÁÐHERRA VÍSAR ÞVÍ Á BUG AÐ EIGINKONA HANS SÉ Á LEIÐ ÚT Í GEIM. Myndirðu ekki halda að það sé ólíklegt?“ Spurði Jakob Bjarnar léttur í bragði.
Hann segist síðan hafa birt samviskusamlega frétt af því að Sigmundur Davíð hafni þessu alfarið. Í framhaldinu kom síðan í ljós að það var forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, sem hafði falast eftir geimferðinni. Ekki Anna Sigurlaug. Og þetta fékk Morgunblaðið staðfest hjá Örnólfi Thorssyni, forsetaritara.
„Svona var þetta nú allt í pottinn búið,“ sagði Jakob Bjarnar við Tóta og „niðurstaða þessa stórfurðulega máls og dags í lífi blaðamanns að hin ævintýragjarna var Dorrit en ekki Anna Sigurlaug, og skal engan undra.“
Jakob Bjarnar sagðist hafa fulla samúð með forsætisráðherranum og að honum hafi brugðið í brún við þessar fréttir. Ég meina, hvað á hann að halda?“
Blaðamennirnir tveir furðuðu sig síðan á því að Branson hafi ekki gert greinarmun á Dorrit og Önnu Sigurlaugu þar sem Dorrit og hann eru góðir vinir. „Já, þetta varpar svolitlum skugga á vináttu Dorritar og Bransons. Að Dorrit sé kannski ekkert mjög hátt skrifuð hjá Branson,“ velti Jakob Bjarnar fyrir sér.
Og benti síðan á að hann gæti alveg viðurkennt að „það er svolítið mikið fyrir einn íslenskan blaðamann að lenda einhvern veginn á milli, sem einhvers konar millistykki, milli Bransons, Daily Mail og svo hins íslenska aðals. Sérkennilegt og ekki fyrir hvern sem er.“
Hlustið á þáttinn allan hér. (Viðtalið við Jakob Bjarnar hefst á mínútu 59:30)
Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.