Það er enginn skortur á flatbökustöðum á Íslandi, en vandinn er sá að þeir eru afskaplega misjafnir, sumir jafnvel svo lélegir að inntaki og útliti að ekki tekur því að víkja að þeim frekari orðum. Og svo eru þeir hinir sem raða sér á lista hinna framúrskarandi pizza-staða - og eru þeir allnokkrir. Sá sem þó stendur þar upp úr er á Bústaðaveginum, nánar til tekið í Grímsbæ, rekinn af leikaranum Ellerti Ingimundarsyni og fjölskyldu hans; persónulegur staður með hlýlega þjónustu en umfram allt svo brakandi góðar og lystugar pizzur að heimurinn má hafa sig allan við í samjöfnuði. Og hér eru engar ýkjur á ferð, því Ellert og hans fólk hefur einfaldlega fundið deigið, hráefnin og eldunina sem gerir flatböku að svo gott sem hátíðarmat. Já, Grímsbær er kennileitið, Eldofninn staðurinn ...
Best geymda leyndarmál pizzunnar
Fleiri fréttir
Nýjast