,,berar konur“

Naktar konur eru að mínu mati ekkert sérstakari en naktir karlar. En það er látið alveg endalaust með berar konur. Og við erum mikið bornar saman. Öll fæðumst við nakin og erum ber undir fötunum. En það kemur ekki í veg fyrir að naktar konur eru endalaus uppspretta umfjöllunar og sölumennsku í fjölmiðlum nútímans. Margir eru komnir með nóg af þessu. Og ég dáist að ungum konum sem vilja frelsa brjóstin undan klámvæðingunni. Gott hjá þeim að berjast fyrir frelsun geirvörtunnar. Það er hálf brjóstumkennanlegt að sjá hvernig Hollywoodstjörnur, sem sýna næstum allt, fara á límingunum ef geirvartan sést eða bossinn birtist í blaði. Hvað er svona merkilegt við það? Það sést hvort sem er nánast allt þegar dísirnar birtast á rauða dreglinum. Herrarnir eru reyndar alltaf kappklæddir, eins og þeir hafi ekkert að sýna. En hvers vegna er látið svona mikið með bert kvenfólk? Er ekki málið að hugsa aðeins hærra og hefja sig upp yfir þetta brjósta- og bossadæmi? Í sumum samfélögum þurfa konur að hylja sig undir slæðum, búrkum og skósíðum klæðum því ómótstæðilegur líkaminn gæti truflað dýrslegt eðli karla. Væntanlega er þetta nú frekar spurning um völd og yfirráð heldur en mun á líkamlegu aðdráttarafli karla og kvenna. Og nýlega var ég á Spánarströnd þar sem Evrópubúar spókuðu sig hálf naktir í fjöruborðinu og þá blasti sannleikurinn við: Munurinn á líkömum karla og kvenna er minni en af er látið. Karlar eru margir hverjir komnir með brjóst á stærð við meðalkonur og konur eru margar með vömb á stærð við meðalístrubelg. Munurinn á kynjunum virðist minnka eftir því sem við fitnum. Er ekki málið að spá meira í hvað við látum ofaní okkur, hvað við látum út úr okkur og í hvað við verjum tímanum heldur en að vera stöðugt í þessari opinberu nöktu naflaskoðun?
 
Þess má geta að allir gestir mínir í sjónvarpsþættinum ,,Lífsins list“ í sumar eru naktir undir fötunum.
 
Sumarkveðja,
 
Sirrý
 
P.s. Maðurinn minn er mér ósammála í þessu en við getum sammælst um það að brátt berast fréttir af því að við getum farið að tína ber.