Leikárið er að hefjast með látum, jafnt norðan heiða sem sunnan - og fyrir unnendur leikhússins er margt í boði. Sú sýning sem fer þó helst með himinskautum þessa dagana er Í hjarta Hróa hattar sem Gísili Örn Garðarsson og Selma Björnsdóttir hafa hrist fram úr erminni samvinnu Vesturports og Þjóðleikhússins með aðstoð einvala liðs leikara - og það verður að segjast eins og er; þetta er veisla fyrir augu og eyru, enda sjóuð sýning frá því Vesturport setti hana upp ytra í samvinnu við Royal Shakespeare Company, takk fyrir. Og hver er galdurinn? Jú, sögu Hróa og hans fólks er sýnd virðing, svo og áhorfendum öllum sem þurfa að hafa sig alla við til að fylgjast með tilburðunum uppi á sviði sem eru einstaklega fagmannlegir, svo ekki sé meira sagt ... á sviðinu sjálfu - og yfir því ... Sumsé, fjölskyldusýning í sérflokki ...
Barasta farið og sjáið hróa
Fleiri fréttir
Nýjast