„Er þetta ekki bara þessi posh femínismi sem hefur verið ráðandi hér síðustu árin og áratugina? Hann snýst um að koma konum líka eins og forréttindadrengjunum í milljónastöðurnar en hefur minni áhuga á hinum raunverulega vanda sem er snarbrenglað verðmætamat?,“ segir blaðamaðurinn Jakob Bjarnar í athugasemd við færslu Eflingar-formannsins, Sólveigar Önnu Jónsdóttur, um auglýsingu sem Kvenréttindafélag Íslands birti í gær í bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í tilefni af 19. júní, Kvenréttindadeginum.
„Það er ekki nema rétt ár síðan að Bogi Nils leiddi eina ömurlegustu aðför að kvennastétt sem sést hefur í íslenskri vinnumarkaðs-pólitík, þegar að Icelandair og SA "union-böstuðu" Flugfreyjufélag Íslands í miðri kjaradeilu. Eins og þið munið kannski var planið að fá karlastéttina flugmenn til að ganga í störf flugfreyja. Ég hefði sagt "Þetta mun aldrei gleymast" en mig langar ekki að segja ósatt,“ skrifar Sólveig Anna.
Formaður Sósíalistaflokksins, Gunnar Smári Egilsson, segir að myndin gæti kallast „Fjármálavæddur kapítalismi undir lok nýfrjálshyggjutímans munar ekkert um að gleypa millistéttarfemínismann, sér enga ógn í honum, notar hann í auglýsingar fyrir Íslandsbanka og Byko“ og að yfirskriftin gæti verið „ Við mótmælum engu, erum sátt“.
Fleiri taka undir það sem Sólveig Anna segir og velta því fyrir sér af hverju á myndinni eru eingöngu stjórnendur.
„Mér sýnist sem kvenréttindafélagið einbeiti sér þarna að stjórnendum og toppum. Verkakonur taka engar ákvarðanir og engin ástæða til að bjóða þeim með. Eitthvað þannig,“ segir Hallgerður Hauksdóttir í sinni athugasemd.