Sannarlega er Ragnar Jónasson erfðaprins glæpasagnanna, kominn með sína sjöundu bók á jafnmörgum árum og hefur stimplað sig inn í huga lesenda sem einhver liprasti penni þessa sagnaforms, en jafnframt slíkur vefari að fléttan sem hann skilur eftir er áhugaverðari, sannferðugri og óvæntari en áhugafólk um dökkar bækur á að venjast. Dimma er fantagóð bók í orðsins fyllstu merkingu - og snjöll og frumleg er sú hugmynd höfundar að leiða hér fram á sjónarsviðið roskna aðalpersónu sem er um það bil að klára starfsævina, en getur það auðvitað ekki sakir aðstæðna sem taka svo óvænta stefnu að sjálfur endirinn fær mann til að kreppa sig saman í fósturstellingu undir leslampanum. Sjaldan hefur verið jafn auðvelt að gefa nokkurri bók fjórar stjörnur ...
Bækur ragnars eru alger glæpur
Fleiri fréttir
Nýjast