Fáir slá út nesbö

Krimmi er ekki sama og krimmi. Fyrst og fremst þarf hann að vera trúverðugur og hæfilega hrár í allri viðkomu, jafnvel svo manni standi ekki alveg á sama. Nýjasti reyfarinn hans Jo Nesbö, Afturgangan, er þessarar gerðar, hráslagalegur í allri sinni gerð og einkar sannfærandi, sem er vitaskuld lykilatriði þegar kemur að æsispennandi framvindu góðra glæpasagna. Nesbö hefur auðvitað fyrir margt löngu sannað sig sem einhver beittasti penni sinnar gerðar - og vel að merkja, karlinn er ekkert farinn að endurtaka sig.