Gagnrýnir davíð fyrir forsetaskrifin

Athafnaskáldið Óskar Magnússon var gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í vikunni og ræddi þar ekki einasta nýjustu afurð sína á bókfelli heldur og viðburðaríka ævi sem hefur verið heldur betur verið kaflaskipt.

Hressilegt samtal hans og Sigmundar Ernis má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, en Óskar og spyrill þáttarins kynntust raunar fyrir hálfum fjórða áratug þegar norðanpilturinn kom suður yfir heiðar og hugðist gerast blaðamaður á róttækasta blaðinu í borginni, Þjóðviljanum, en fékk þar ekki inni svo hann hélt austur eftir Síðumúlanum og var að lokum ráðinn á þriðja staðnum, Vísi, þar sem honum var vísað til sætis á bás með þeim félögum Árna Sigfússyni, Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni og Óskari Magnússyni, sumsé; blárra gat það nú ekki verið - og ber þá hægrimennsku auðvitað á góma í samtali gömlu félaganna í þættinum.

Óskar var um þetta leyti að læra lögfræði og starfaði sem slíkur um árabil, en tók svo til við að stjórna hverju stórfyrirtækinu af öðru, þar á meðal Hagkaupum, Tryggingamiðstöðinni og Morgunblaðinu - og tók þar meðal annars þátt í ráðningu Davíðs Oddssonar sem Óskar segir hafa verið réttmæta og þaulhugsaða ákvörðun á sínum tíma, en hann leynir því ekki í þættinum að Davíð hafi verið á hálum ís í skrifum sínum um síðustu forsetakosningar eftir að hafa sjálfur barist þar um hituna - og misnotað þar aðstöðu sína.

Óskar hefur allt frá því um aldamót átt heima austur í Fljótshlíð og unir hag sínum óvíða betur með Hrafnhildi eiginkonu sinni og orðlögðum myndlistarmanni, en þar situr húsbóndinn tíðum við skriftir hin síðari ár, enda feiknlega skemmtilegur penni, svo sem sjá má af tveimur smásagnasöfnum og jafnmörgum skáldsögum sem hann hefur sent frá sér á undanliðnum árum, en þær hafa fengið afskaplega góðar viðtökur.

Verjandinn, nýjasta skáldsaga Óskars er að einhverju leyti byggð á reynslu höfundar úr lögmennskunni - og þótt undirtónn sögunnar sé alvarlegur í meira lagi, svíkur höfundur ekki lesendur sína með því vel yddaða stílvopni sem hann kann handtökin á; frískandi gamansemin er aldrei langt undan í mannlýsingum og vettvangssenum sögunnar.

Óskar tekur enda gleðina fram yfir depurðina í lífinu sem sést vel á spjalli þeirra Sigmundar Ernis í þessum skemmtilega viðtalsþætti sem eins og fyrr greinir má nú sjá á vef stöðvarinnar.