Ásdís Olsen varpar ljósi á allt sem er falið og fordæmt í nýrri sjónvarpsþáttaröð á Hringbraut. Þættirnir Undir yfirborðið fjallar hispurslaust um mennskuna, tilgang lífsins og leitina að hamingjunni.
Ásdís er hamingjufræðingur og sjónvarpskona sem hefur verið í fararbroddi í kennslu núvitundar á Íslandi. Hún er reyndur fyrirlesari og háskólakennari sem hefur lengi starfað innan fjölmiðlageirans.
Í þáttunum sem sýndir verða á miðvikudagskvöldum klukkan átta mun Ásdís skoða bleiku fílana heima í stofu og allt það sem ekki má tala um. Þá leitast hún við að skilja fíknina, óttann, þögnina, skömmina, stjórnsömu mömmuna og pabbann sem er alltaf að skreppa.
![]()
Fjallað verður um sí stækkandi hóp Íslendinga sem notar vitundarvekjandi efni til að flýta fyrir þroska sínum. Talað um single-ástarlífið; Polyamorous, Fluid, ástarfíkn, Tinder og dating. Við fjöllum um sambönd; tengsl, Tantra, Gaslighting og Stokkhólmssyndromið.
Veltir Ásdís því fyrir sér hvort koma megi í veg fyrir flesta hjónaskilnaði með smá leiðsögn í samskiptum og kemst að því að fæst okkar finna muninn á óttatilfinningu og hrifningu.
Þá finnur Ásdís hugsanlega til samkenndar með siðblindingja í þáttunum og kynnist fólki sem hefur séð ljósið og er í góðu sambandi við æðri mátt.