Reglulega kemur upp umræðan um barneignir og þann samfélagslega þrýsting sem margir upplifa gagnvart þeim. Mörg pör hafa vinsamlegast beðið fólk um að hætta spurningum á borð við: „Hvenær á svo að skella í eitt kríli?“ Þær séu óviðeigandi og geta jafnvel verið særandi.
„Þetta eru ótrúlega dónalegar spurningar! Í fyrsta lagi, hvað kemur þér það við hvort Jón og Gunna ætli að koma með barn? Hvað kemur þér það við hvort Siggi og Jóna ætli að henda í eitt annað? Eða ég, sem á tvær stelpur, hvenær ætli ég komi nú með strákinn,“ segir Aníta Arndal í nýjustu færslu sinni þar sem hún tekur fyrir þessa mikilvægu umræðu.
Spurningarnar geta sært
Hún heldur áfram og segir: „Þið vitið ekki aðstæður hjá fólki. Er fólk að reyna að eignast barn, geta þau eignast barn? Það eru svo ótrúlega margar og mismunandi ástæður hjá fólki sem við hin vitum ekkert um og þessar spurningar get sært viðkomandi mjög mikið.“ Segir Aníta.
Segist hún sjálf reglulega fá þá spurningu hvenær hún og kærasti hennar ætli sér að eignast strák, en fyrir eiga þau tvær stelpur.
„Ég er orðin svo þreytt á þessari spurningu, ef ég segi: „Það mun ekki koma neinn strákur, okkur langar ekki í annað.\" Þá er ALLT BRJÁLAÐ og fólk í alvörunni móðgast.““
Þá fær hún reglulega spurningar og sannfæringar á borð við:
„Ertu að segja mér það að þig langi ekki í annað barn? Þú getur ekki sagt þetta, þú ert svo ung. Þú átt eftir skipta um skoðun og koma með annað barn.“
Hvað um þá sem ekki geta eignast börn?
Segist hún furða sig á því hvers vegna hún þurfi að rökstyðja svar sitt líkt ot hún væri í prófi í grunnskóla.
„Þarf ég að sannfæra alla um að mig langi ekki í annað barn. Ég á tvö heilbrigð börn sem ég er ótrúlega þakklát fyrir og elska mjög mikið og það er fínt. Ég hef aldrei skilið af hverju fólk þarf að spyrja. Ef ég myndi nú segja: „Já, við erum nú búin að vera að reyna og reyna í eitt og hálft ár en ekkert gengur og næsta skref er að fara og fá hjálp. Hvað þá? Hvað ætlar þú að segja þá? Eða hvað ef ég myndi segja: „Já, barn segirðu? Ég get ekki eignast börn.“
Aníta segist gera sér fulla grein fyrir því að fólk sé ekki að meina neitt ill þegar það varpi þessari spurningu fram og að í sumum tilfellum sé ekkert að hrjá þá aðila sem spurðir séu en að samt sem áður sé þetta mjög persónulegt málefni sem fólk vill yfirleitt halda út af fyrir sig.
„Næst þegar þú hittir vinapar, frænku, frænda, kunningja eða hvern sem er - hugsaðu fyrst áður en þú spyrð.“