Fyrsti fjölmiðlauppsláttur sumarsins var að Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, ætti peninga í aflandsfélögum og hefði notað eitthvað af þeim annars vegar til að fjárfesta í fyrirtæki sonar síns og hins vegar til að greiða einhverjar skuldir sínar og eiginmannsins.
Nefndur er til sögunnar skíðaskáli í Ölpunum og þegar rýnt er í fréttirnar verður ekki betur séð en að þessi skíðaskáli hafi verið seldur og skuldir vegna hans við banka greiddar fyrir andvirðið. Raunar verður ekki betur séð en að þau hjón hafi gert að fullu upp við lánardrottna sínar persónulegu skuldir.
Málatilbúnaður slitastjórnar Glitnis gegn fyrrum eigendum og stjórnendum bankans í New York er tíndur til sem dæmi um að eiginmaður Ingibjargar hafi ekki hreint mjöl í sínum poka. Ekki er tekið fram að dómarinn í New York hló að þessum málatilbúnaði slitstjórnarinnar, taldi hann fáránlegan og farsakenndan, og vísaði málinu frá dómi.
Þá stendur eftir að Ingibjörg átti peninga erlendis og úr því ekkert er ólöglegt við það eða athugavert við ráðstöfun þeirra er spurt hvaðan peningarnir komu. Einhverjir rokgjarnir álitsgjafar og fréttamenn halda því fram að eiginmaður Ingibjargar hafi tekið þá að láni á íslandi og flutt á nafn hennar í útlöndum.
Svona málflutningur er kvenfyrirlitning á hæsta stigi. Ingibjörg hefur lengi verið með efnuðustu Íslendingum. Hún fékk háar fjárhæðir í sinn hlut þegar fjölskyldufyrirtækið, Hagkaup, sem faðir hennar hafði byggt upp, var selt. Í kjölfarið fjárfesti hún í fasteignum og hótelrekstri, m.a. á Hverfisgötu, og hefur ávaxtað pund sitt vel. Það eru því nærtækari skýringar á hennar peningaeign en sú að eiginmaður hennar hafi slegið peninga hér á landi til að setja yfir á hennar nafn í útlöndum.
Uppsláttur sumardagsins fyrsta vekur mann til umhugsunar. Haft er fyrir satt að blaðamenn á þremur íslenskum fjölmiðlum hafi undanfarnar vikur lagt nótt við dag við að vinna úr gögnum frá Mossack Fonseca lögfræðistöfunni á Panama. Þar ku vera 600 íslensk nöfn.
Heldur er eftirtekjan rýr ef upp úr stendur, þegar ráðherrum og mökum þeirra sleppir, að Ingibjörg Pálmadóttir sé efnamanneskja sem eigi peninga í útlöndum. Allir hafa lengi vitað að hún er efnuð og hún hefur að mestu verið búsett utan Íslands um árabil. Það er ekkert nýtt þarna og ekkert ólöglegt.
Er ekkert annað bitastætt í þessum gögnum? Eru engir dómarar á listanum? Engir embættismenn? Engir forstjórar skráðra fyrirtækja? Engir bankamenn sem starfa í bönkunum í dag? Það er eðlilegt að fólk geri kröfu um að öll nöfnin og allar upplýsingar verði settar upp á borðið án tafar. Getum við treyst því að ekki sé búið að fjarlægja nöfn af listanum? Með ferð þessara upplýsinga lyktar af því að handhafar þeirra séu að nýta sér þær í pólitískum tilgangi og þeim tilgangi að koma höggi á ákveðna aðila. Af hverju er ekki allt sett upp á borðið?