Mikil örvænting er ríkjandi í forystu stjórnarflokkanna vegna hörmulegs gengis í skoðanakönnunum. Fylgi Framsóknar sveiflast kringum 10% í skoðanakönnunum allt þetta ár. Engin batamerki er að sjá, frekar en hjá Sjálfstæðisflokknum sem er nú með 23,7% fylgi í nýjustu könnun MMR þrátt fyrir alla þá athygli sem flokkurinn fékk í tengslum við landsfund sinn í lok október.
Flokkarnir leita nú leiða til að hysja upp fylgið. Fram að þessu hafa engin útspil gagnast í þeim efnum. Svo virðist sem fylgi Framsóknar minnki í hvert skipti sem forsætisráðherra talar, að ekki sé nú minnst á vandræðabörn flokksins, Vigdísi Hauksdsóttur, Frosta Sigurjónsson og Eygló Harðardóttur.
Í kringum landsfund Sjálfstæðisflokksins kom upp umræða um að fyrir dyrum stæði uppstokkun í ríkisstjórninni. Ætlunin var að freista þess að fríska upp á dapurlega ásjónu stjórnarinnar og losa sig við þá sem hafa litlu komið í verk eða verið umdeildir vegna klúðurs-eða sukkmála. Nú virðist vera að koma á daginn að formennina skorti báða kjark og þrek til að gera þær breytingar á ríkisstjórninni sem fyrirhugaðar voru. Staða þeirra er ekki nógu sterk til að hrófla við fólki og því er viðbúið að sama veika liðið skipi hóp þeirra sem gegna ráðherraembættum. Hugsanlega verður eitthvað hrært í pottinum með því að færa fólk milli ráðuneyta. Það mun engu breyta og ekki verða til að lyfta döpru fylgi stjórnarflokkanna.
Það sem á að reyna núna er málflutningur sem gengur út á að ALLT GANGI VEL. Reynt er að láta líta þannig út að það sé ríkisstjórninni að þakka að atvinnuleysi hefur minnkað, hagvöxtur hefur aukist, gjaldeyrir streymir inn í landið og fjárfestingar eru í vexti.
En stöldrum aðeins við. Núverandi eða fyrrverandi ríkisstjórnir hafa ekkert gert sem skýrir aukinn hagvöxt og hærra atvinnustig á Íslandi nú um stundir. Ferðaþjónustan á allan heiðurinn. Sá gríðarlegi vöxtur sem verið hefur í ferðaþjónustu landsmanna síðustu 5 árinn hefur skapað hagvöxtinn sem við njótum nú góðs af. Hann hefur eytt atvinnuleysi í landinu og komið fjárfestingum af stað. Hvorki Steingrímur J. Sigfússon, Bjarni Benediktsson né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eiga heiður af þeim bata sem blasir nú við. Ferðaþjónustan er orðin stærsta gjaldeyrisöflunargrein þjóðarinnar og leggur til 330 milljarða gjaldeyristekjur á árinu 2015. Vöxtur í greininni á þessu ári er 30% en hefur verið kringum 20% á ári hin síðari ár.
Formenn stjórnarflokkanna tala um að verið sé að afnema gjaldeyrishöft í landinu. Það eru uppi áform um það en engum höftum hefur enn verið aflétt. Til er áætlun um uppgjör við slitabú stóru bankanna. Vonandi gengur hún eftir en ekki er búið að ljúka neinu. Verulegar efasemdir eru um að þær tölur sem nefndar hafa verið um ávinning ríkisins af þessum samningum fái staðist. Víst er að gjaldeyrishöftin eru ekki að fara en vonandi léttir eitthvað á þeim.
Forsætisráðherra hefur því miður verið allt of yfirlýsingaglaður og flest bendir til þess að hann muni alls ekki geta staðið við stóru orðin. Þegar hann tjáir sig eru Íslendingar yfirleitt að hrinda í framkvæmd einhverjum aðgerðum sem eru svo merkilegar að um “heimssögulega” atburði er að ræða eða þá að árangur okkar sé að vekja mikla athygli “víða um heim”. Þetta er auðvitað ekkert annað en derringur og mont sem í besta lagi er brosað yfir eða hlegið að.
Höldum staðreyndum til haga: Ferðaþjónustan á allan heiðurinn. Við erum svo lánsöm að Ísland er í tísku og íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hafa staðið vel að landkynningu og markaðssetningu á þjónustu sinni víða um heim. Við eigum glæsileg fyrirtæki í þessari atvinnugrein sem rekin eru af myndarskap og festu. Þau eru grundvöllur þess mikla uppgangs sem blasir við í ferðaþjónustu Íslendinga. Stjórnvöld hafa hvergi komið nærri. Nema þá til ills eins og dæmið um það klúður sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, er ábyrg fyrir vegna ferðamannapassans sem hún reyndi að innleiða gegn vilja nánast allra. Það töpuðust tvö dýrmæt ár í uppbyggingarstarfi innan ferðaþjónustunnar vegna þvermóðsku ráðherrans. Þrátt fyrir það gengur vel.
Heiðrinum af bættum hagtölum getur ríkisstjórnin ekki stolið frá ferðaþjónustunni. Það mun ekki takast. Þjóðin er of vel upplýst til þess.
Sigmundur Davíð verður áfram að grípa til örþrifaráða eins og að halda því fram að sá dáði og elskaði forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, hafi verið framsóknarmaður. Varla er unnt að sýna minningu látins leiðtoga meiri lítilsvirðingu en að halda slíku fram eins og Sigmundur gerði á miðstjórnarfundi Framsóknar um síðustu helgi.