Algert gersemi er stríðsárabók pbb

Bókmenntafræðingurinn Páll Baldvin Baldvinsson hefur sent frá sér mikinn doðrant um stríðsárin á Íslandi þar sem hann fjallar um þær öru breytingar sem urðu á tiltölulega einhæfu og lokuðu íslensku samfélagi um miðja síðustu öld. Bókin er mikil að vöxtum og inntakið er ríkulegt, enda er ritsmíðin afar merkileg áminning um hvað Ísland vaknaði upp með miklum andfælum um þetta leyti þegar nútíminn virtist svo fjarri Íslandsströndum. Það er unun að fletta þessari bók, ekki aðeins sakir vel skrifaðra kafla hennar sem eru gagnorðir og skilmerkilega skrifaðir heldur og ekki síður sakir þess mikla myndasafns sem prýðir bókina, en fjölda óbirtra ljósmynda er að finna í ritinu sem veitir birtu inn í marga sérstæða kima hernámsáranna sem á stundum hafa verið sögð ástandinu líkust. Mest um vert er að PBB hefur unnið verk sitt af nákvæmni, alúð og listfengi og skilar hér ekki aðeins verki sem er enn ein stríðsárabókin heldur ein þeirra sem mestu máli skiptir ...