Alger hugljómun á sætran

Maturinn skiptir auðvitað miklu máli þegar farið er út að borða, en andrúmsloftið, umhverfið og þjónustan getur líka  breytt þokkalegum mat í dásamlegan. Á Grillmarkaðnum gerist þetta allt. Ekki það að maturinn sé eitthvert gaufalegt dútl úr eldhúsinu; hann er upplifun, en vel að merkja; við það bætist einhver sú notalegasta stemning sem hægt er að njóta á veitingahúsi á Íslandi. Það er eitthvað í lagi hússins, látbragði þjónanna, lagavalinu ... það er aldrei að vita, en meginkryddið er auðvitað upplifunin af matnum í þessu ríkulega húsi metnaðar og fullvissu um gott hráefni. Eiginlega er Grillmarkaðurinn eins og innsetning listamanns þar sem allir þræðir prjóna sig hver í annars enda. Við bíðum þess eins að yfirkokkurinn, Hrefna Sætran fái fálkaorðuna ...