Alexandra reiddist: „mér finnst aldrei í lagi að spyrja þessar spurningar.“

„Þessi spurning hefur alltaf stuðað mig.“ Þetta segir Alexandra  Nikulásdóttir þjálfari í viðtali við Vísi sem hefiur vakið mikla athygli. Hún kveðst reglulega fá skilaboð um hvort hún eigi von á barni. Hún segist verða reið þegar hún er spurð hvort hún sé ólétt.
„Í fyrradag fékk ég þessa spurningu í annað skipti á mánuði frá ókunnugri konu og mér varð svo heitt í hamsi þar sem ég hef ekki gefið til kynna að svo væri eða rætt þessi málefni á mínum miðli að ég varð að taka upp hanskann fyrir okkur konur.  Það eru svo ótrúlega margar að ganga í gegnum erfiðleika sem við vitum ekki af tengdu þessu og þar fyrir utan finnst mér þetta vera mjög persónuleg spurning að það kemur ekki öðrum við nema viðkomandi tala um það af fyrrabragði. Þetta er eitthvað sem fer á milli þín og maka þíns.“
Þá segir Alexandra að ekki sé sjálfgefið að konur geti orðið óléttar og spurningin getur því verið særandi og haft mikil áhrif á andlega líðan kvenna sem geti ekki átt börn.
„Margar sem ganga í gegnum fósturmissi, fæða andvana barn, ófrjósemi og annað og eru ekki tilbúnar að tala um það. Svo eru aðrar sem að vilja ekki eignast börn og aðrar sem eru ekki í sambandi eða önnur persónuleg vandamál sem kemur í veg fyrir barneignir. Það eru forréttindi að verða ólétt, ganga með barn og fæða heilbrigt barn.“

Alexandra bætir við:
„Mín upplifun er stundum sú að maður sé verri manneskja af því að maður á ekki börn.“

Hér má lesa viðtalið í heild sinni.