Aktu um með ólafi

Aldrei ekur maður betur úti í umferðinni og þegar góð og áheyrileg tónlist er í viðtækinu fyrir framan mann. Það er ekki víst að þetta sé vísindalega sannað, en það er samt eitthvað sem segir manni að ljúfir tónar og helst ekki of ágengir rói mann og geri að betri manneskju. Og hvað skal þá hlustað á, tja … helst Ólaf Arnalds eins og hann leggur sig. Það er eitthvað í músík þessa manns sem fær mann til að fyllast vellíðan. Það er eins og tónskáldið búi yfir dáleiðsluhæfileikum, hlustandinn fari sjálfviljugur yfir í annan heim þegar hann leggi við hlustir á þessar kompósur sem eru á mörkum dægurlaga og sinfóníu, já kannski einmitt hæfilegur skammtur af hvoru tveggja – og vittu til; þú keyrir ekki bara betur heldur verður líka umburðarlyndið uppmálað í umferðinni.


Smelltu og hlustaðu á tónlist Ólafs