Aflandsríkin eru krónuskjól

Hagfræðingurinn Ólafur Arnarson segir það vekja margar áleitnar spurningar að forystumenn ríkisstjórnarflokkanna skuli kjósa að forða fé sínu undan krónunni til aflandseyja á meðan íslenskur almenningur er læstur kyrfilega inni í krónuhagkerfinu.

Alla jafna er tilgangur þeirra sem skrá fyrirtæki á aflandseyjum að spara sér skatta. Íslenskt stjórnmálafólk og venslalið þess segist hafa greitt alla skatta af aflandseyjafé sínu þannig að þá blasir við sú spurning hvað í ósköpunum það er að sýsla með fjármuni sína í skattaskjólunum?

Ólafur ræddi meðal annars þennan vinkil við Tóta í síðdegisþætti útvarps Hringbrautar, FM 89.1 og sagði meðal annars: „Það getur vel verið að íslenskir
stjórnmálamenn séu svo heiðarlegir að þeir flytji sína peninga í þessi skattaskjól og borgi samt sem áður af þeim öll gjöld og skatta, sem á að greiða hér á Íslandi. Og ég ætla ekkert að draga það í efa,“ sagði Ólafur.

„Hver er þá tilgangurinn? Jú, þá hlýtur tilgangurinn að vera sá að geyma  peningana, ekki bara að geyma þá í erlendri mynt heldur koma þeim algerlega
út úr krónuhagkerfinu. Verja þá. Koma þeim í skjól frá krónuhagkerfinu.“

Skattaskjólin eru semsagt einnig krónuskjól. „Og það vekur auðvitað áleitnar spurningar þegar þarna eru helstu forystumenn þeirra flokka sem eru hvað ákafastir í því að íslenskur almenningur, íslenskt atvinnulíf, nema kannski stórútgerðin, skuli lifa hér inni í krónuhagkerfinu og nota krónuna. Af hverju fer þettta fólk, forystumenn þessa flokka, með sína fjármuni og sinnar fjölskyldu út úr þessu kerfi, út úr krónuhagkerfinu og geyma þetta í erlendri mynt?“

Ólafur benti á að eiginkona forsætisráðherra hefði í yfirlýsingu sinni getið þess að hún hefði haft fjármuni á aflandseyju til þess að hafa aðgang að peningunum erlendis. „Að vera ekki með þá lokaða inni á Íslandi en samt eigum við að nota krónuna. Þessu hefur ekki verið svarað og þetta myndi ég telja vera einhverja áleitnustu spurninguna í þessu sambandi.

Hvernig leyfir fólk sér að taka allt sitt út úr krónuhagkerfinu en ætlast til þess að aðrir séu lokaðir inni í krónuhagkerfinu? Ég felst ekki á þau rök að það felist
einhver sérstök fórn í því og við eigum að taka ofan fyrir þessu fólki fyrir það að það skuli fórna sér í það að geyma sína peninga í erlendri mynt á meðan við fáum að vera hér með krónuna. Ég kaupi ekki alveg þá uppsetningu.“

 

Hlustið á allt samtalið við Ólaf Arnarson á Hringbraut FM 89.1 og lesið pistil Ólafs um málið á Hringbraut.is

Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18