Áfengisfrumvarpið er dautt

Stjórnmál skiptast einkum í alvörumál sem varða miklu eða bjánaleg upphlaupsmál sem litlu skipta þegar litið er á stóru myndina en eru notuð af pólitísku smáfólki til að reyna að afla fylgis.

Frumvarp um heimild til sölu áfengis í sjoppum og stórmörkuðum er dæmigert mál af þessu tagi. Fyrsti flutningsmaður, Vilhjálmur Áranson úr Sjálfstæðisflokki, kom inn á þing vorið 2013 og hefur ekki sést í stjórnmálaumræðum síðan ef undan er skilið þetta eina mál. Reyndar er komin fram skýring á þeirri þögn sem verið hefur um Vilhjálm. Hann má ekkert vera að þessu stússi í þinginu því hann er að læra lögfræði í háskóla.

Vilhjálmur er fyrsti flutningsmaður og sá sem þetta vandræðafrumvarp er kennt við. Meðflutningsmenn hans eru nokkrir. Sá merkasti þeirra er því miður látinn, Pétur Blöndal. Við fráfall hans lækkaði standard þingsins enn því Pétur var virtur og gáfaður þingmaður. Jón Þór Pírati er annar meðflutningsmanna en hann er hættur í þinginu, búinn að segja af sér. Svo eru Karl Garðarsson og Haraldur Einarsson einnig með Vilhjálmi á frumvarpinu en þeir eru allir þrír við nám í háskóla. Trúlega geta þeir rætt um áfengisfrumvarpið í frímínútum því ekki eru þeir mikið að þvælast í þinghúsinu vegna anna við námið.

Áfengisfrumvarpið er dæmigert fyrir framlög stuttbuxnakrakka úr flokkunum til stjórnmálaumræðunnar. Þau hafa ekki vit á stóru málunum, skilja þau ekki og þora ekki í þau. Þá er verið að tala um framtíð krónunnar í höftum, fiskveiðistjórnunarkerfið, landbúnaðarsukkið, mismunun í kosningarétti milli þéttbýlis og dreifbýlis – að ekki sé nú talað um vanda heilbrigðiskerfisins. Smáfólkið í stjórnmálunum snertir ekki á þeim.

Spurt er hvenær þessir krakkar ætlar að fullorðnast. Svörin eru löngu komin fram: Þau munu ekki fullornast, heldur verða áfram á pólitískum stuttbuxum þó árin færist yfir, menn verði miðaldra, sköllóttir eða gráhærðir. Pólitíski þroskinn haggast samt ekki, fastur í farinu og frosinn í botn.

Í þessu samhengi er fróðlegt að lesa litla tilvitnun í sunnudagsblaði Mogga þar sem tekin eru upp af netinu dæmi um speki sem nafngreint fólk sendir frá sér. Ein þessara tilvitnana frá því í gær hljóðar svo:

“Allir hlynntir ÁTVR fyrirkomulagi á áfengissölu mega hugleiða að þetta hús var áður Grænmetisverzlun ríkisins”, segir höfundur og birtir mynd af húsi við Ármúla með djúpri speki sinni. Bætir svo við að á sínum tíma hefðu aðalrökin fyrir því að mjólkurvörur færu ekki í almennar verslanir verið hversu viðkvæmar þær væru í geymslu.

Með þessu birtist svo mynd af miðaldra manni, Magnúsi Ragnarssyni, sem er fyrrverandi Heimdellingur. Löngu vaxinn upp úr Heimdalli í aldri, en ekki í þroska ef marka má málatilbúnað hans. 

Þeir sem tala fyrir sölu áfengis í sjoppum verða að átta sig á því að hér er ekki bara um að ræða krúttlegt mál fyrir krakka í Heimdalli eða öðrum unglingasamtökum. Hér er um að ræða alvarlegt heilbrigðismál þjóðarinnar því áfengi er ekki bara einhver varningur heldur fíkniefni sem veldur einstaklingum og þjóðfélaginu ómældu tjóni.

Stuttbuxnadeildir stjórnmálaflokkanna og miðaldra eftirlegukindur þeirra munu brátt komast að því að hvorki þing né þjóð vilja auka áfengisvandann í landinu. Því mun frumvarp Vilhjálms Árnasonar laganema ekki fá framgang á Alþingi. Frumvarpið er dautt.