Eftir erfiði vinnudagsins er alveg hreint gráupplagt að elda einfaldan kjúkling á pastabeði. Þetta er réttur sem leikur í höndunum á manni og bragðast auk þess svo yndislega að fólk verður smám saman háð honum og eldar reglulega það sem eftir er ævinnar. Jæja, hafðu til kjúklingabringur (hálf er nóg á hvern mann) og skerðu þær á endunum í tvær þunnar sneiðar, veltu upp úr brauðmylsnu með nóg af niðurskornum hvítlauki, svörtum ólifum og basilikku og eldaðu í kókosolíu á pönnu. Skelltu fersku taglíatelle í sjóðandi vatn í fáeinar mínútur, sigtaðu vatnið frá og baðaðu pastað í ilmandi grænu pestói, skelltu á diskinn og einni sneið af kjúlla yfir. Og vittu til; þetta er dásemd. Best er að nota brauðmylsnu beint úr næsta bakaríi – og svo má hafa kalda hvítlaukssósu með.
Afar einfaldur kjúlli
Fleiri fréttir
Nýjast