Spurðu hana að fleiru!

Konudagurinn er nýafstaðinn og móðir mín hringdi sérstaklega til að spyrja mig á þeim tyllidegi hvort ég hefði fengið blómvönd frá vonbiðli í tilefni dagsins. Þegar ég traðkaði á væntingum hennar með því að neita því, spurði hún hvort ég ætlaði virkilega að pipra að eilífu. Hún var nú að sjálfsögðu bara að slá á létta strengi, rétt eins og flestir þeir sem spyrja einhleypar konur svipaðra spurninga. En einhverra hluta vegna er kona ekki alveg fullgildur þegn í huga margra svona ofsalega einsömul, án karls sér við hlið, til halds og trausts, helst með borvél og tjakk. Þannig er því nú enn farið á því herrans ári 2015. Orðið piparjónka er heldur engan veginn eins sexý og orðið piparsveinn. Annað ber að forðast – hitt er bara nokkuð eftirsóknarvert, já og jafnvel oft öfundsvert.


Þennan konudag fór áttugasta og sjöunda Óskarsverðlaunahátíðin einnig fram í hinni stóru Hollywood sem hefur aldrei heyrt af konudeginum. Þrátt fyrir það stálu leikkonurnar svolítið senunni í þessu annars karllæga partýi.


Þar tók leikkonan Patricia Arquette á móti verðlaunum sem besta leikkona í aukahlutverki. Í þakkarræðu sinni sagði hún tíma kominn á launajafnrétti kynjanna í Bandaríkjunum. Hún beindi orðum sínum til allra þeirra kvenna sem alið hefðu af sér hvern einasta skattgreiðanda í landinu. Nú væri kominn tími til að þær berðust fyrir sjálfum sér. Sjálf Meryl Streep, ein ástsælasta leikkona draumaverksmiðjunnar fagnaði innilega úr sæti sínu. Þetta gerðist líka árið 2015. Það ár kemst Meryl Streep ekki heldur á lista yfir 100 best launuðu leikara Hollywood, frekar en árin á undan.


Kjánalegar kjólaspurningar


Leikkonan Reese Witherspoon vakti einnig athygli við sama tilefni fyrir að fara fyrir vitundarvakningu sem hófst árið á undan þegar notendur Twitter tóku að benda fjölmiðlafólki á að spyrja leikkonurnar og aðrar konur á rauða dreglinum að einhverju innihaldsríkara en hverju þær klæddust. Þetta gerði fólkið með því að merkja færslurnar með #askhermore eða „Spurðu hana að fleiru“. Þetta er gert með það að leiðarljósi að benda á misréttið sem felst í því að karlarnir á rauða dreglinum eru spurðir út í afrek og vinnusigra ársins á meðan konurnar voru spurðar út í fatnaðinn og skartið sem þær skreyttu sig með.


Á síðasta ári spurði leikkonan Cate Blanchett tökumann sem myndaði hana frá hvirfli til ilja við komuna á Screen Actors Guild verðlaunahátíðina, hvort hann hefði gerst jafn ágengur við karlana á staðnum. Nú í ár komust þær Jennifer Aniston, Julianne Moore og títtnefnd Reese Witherspoon í fréttirnar fyrir að neita að leyfa svokallaðri Manicam að mynda hendur sínar. Um er að ræða sérhannað box til þess gert að mynda sérstaklega handsnyrtingu kvenna fyrir Sjónvarpsstöðina E! Í ár var engin Manicam á Óskarsverðlaununum – svo einhverju hefur uppreisnin gegn handsnyrtingarmyndavélinni skilað! Really krakkar, 2015!?!


Kannski verða engar kjánalegar kjóla- eða kærastaspurningar árið 2016... Kannski!