Að tala mannamál

Okkur Íslendingum er sagt að til að bæta lífskjör hér á landi þurfi að auka framleiðni. Hér sé framleiðni langt að baki þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. 20% lakari en á Norðurlöndunum sem vill svo til að er nokkurn veginn launamunur á milli Íslands og hinna Norðurlandanna. Í þeirri margnefndu skýrslu McKinsey sem kom út árið 2012 var einfaldlega sagt að framleiðni væri akkílesarhæll okkar Íslendinga. En hvað nákvæmlega er átt við þegar talað er um framleiðni?


Albert Guðmundsson fyrrverandi ráðherra og verkalýðsforinginn Guðmundur Jaki voru góðir vinir og Albert leitaði stundum til þessa vinar síns um hin margvíslegu mál. Eitt ráð sem Guðmundur gaf Alberti var að ef hann ætlaði að koma hugleiðingum sínum til skila - ætti hann að byrja á þvi að flytja efnið fyrir verkamönnunum niðri á Eyri - því ef þeir skyldu innihaldið væru skilaboðin skýr. Þetta sagði Guðmundur ekki af því að hann hefði litla trú á verkamönnunum sem hann barðist fyrir mestan part ævi sinnar - þvert á móti. Ráðamenn yrðu einfaldlega að temja sér að tala mannamál - nota orð sem venjulegur Íslendingur notar við eldhúsborðið heima hjá sér en fela sig ekki á bak við orðagjálfur sem margur veit oft ekki hvað nákvæmlega þýðir eða menn leggja ólíkan skilning í.


Ég hef undanfarið spurt ólíklegasta fólk hvað raunverulega sé átt við þegar talað er um að auka framleiðni og hafa svörin verið æði misjöfn. Auka afkastagetu – bæta menntun - fjárfesta í öflugri vélum - fækka fermetrum voru dæmi um svör. Sumum vafðist hins vegar tunga um tönn.


En fyrst að betri lifskjör okkar byggja á aukinni framleiðni afhverju er ekki til listi yfir t.d. 10 mikilvægustu atriðum - 20 mikilvægustu atriðunum - 30 mikilvægustu atriðin til að auka framleiðni hér á landi? Afhverju er ekki til leiðarljós til að vinna eftir - leiðarljós á mannamáli?


Og ég er nokkuð viss um að bæði Albert og Guðmundur Jaki hefðu seint notað orðið framleiðni heldur einfaldlega talað um afköst. Og ég held að fáir stæðu á gati ef þeim yrði gert að nefna 1 – 2 atriði hvernig hægt væri að auka afköst á eigin vinnustað.



Margrét Kristmannsdóttir
framkvæmdastjóri PFAFF