Að éta eða vera étinn

Knúskynslóðin og kaldastríðskynslóðin

 ,,Að éta eða vera étinn“ virðist vera lífsafstaða sumra einstaklinga (og fyrirtækja). Samskiptin einkennast af því að einn vinnur en hinn tapar. Stutt í árásargirni og hörku.

Í nýlegu viðtali í Kiljunni sagði Hallgrímur Helgason rithöfundur frá því að samskipti hér áður fyrr hefðu litast af kalda stríðinu, í mörgum tilvikum. Átök einkenndu allt. Tortryggni og árásir einkenndu samskipti ríkja og það smitaðist út í mannlífið. Og Hallgrímur sagði eitthvað á þá leið að þegar menn fóru út að skemmta sér var málið að ,,taka aðra niður.“ Það mátti skilja á tali hans að stemmningin í skemmtanalífinu hafi verið að valta yfir, ,,skjóta í kaf“.

Ég er viss um að þetta hefur dregið úr sjálfsöryggi fólks, því þeir sem drita allt og alla niður eiga líka von á að verða fyrir kafbátaárásum úr launsátri. Það er ekki mikill innri friður hjá þeim sem eiga stöðugt í stríði.

Samskipti stjórnmálamanna voru svona líka. Og eru í sumum tilvikum enn. Það eru enn til stjórnmálamenn (og ,,aftursætisbílstjórar“) sem geta aldrei sagt frá sinni stefnu öðruvísi en að gera lítið úr andstæðingnum í leiðinni. En að gleðjast með því að smána aðra er heigulsháttur og ,,kaldastríðslegt.“

Það er því alveg einstaklega gaman að fylgjast með unga fólkinu okkar í dag. Unglingar eru nefnilega upp til hópa alveg einstaklega hlýjir og elskulegir í framkomu. Unglingar heilsast gjarnan með faðmlögum og/eða kossum. Á Facebook eru þeir ósparir við að hrósa hver öðrum, skrifa hlýleg orð til vinanna og vinkvenna. Strákar á framhaldsskólaaldri eru margir hverjir alvanir því að segja ,,elsku vinur“, eða ,,ég elska þig“, ,,elsku kallinn minn“, ,,frábæri vinur“ og ,,þú ert bestur“, ,,flotti“ , senda hjarta og broskarla.

Á  mjög afslappaðan hátt nær unga kynslóðin að gefa klapp á bakið svo vinirnir og vinkonurnar brosa hringinn. Þetta er sannkölluð knúskynslóð.

Auðvitað á þetta ekki við um alla. En kynslóðin sem hefur lært ensku af því að horfa á hverja sjónvarpsþáttaseríuna af vinunum í  ,,Friends“ virðist oftar en ekki líta á það sem lífsgæði og töff lífsstíl að umvefja vini sína og vera hlý í samskiptum.

Það þykir ekkert væmið að strákar faðmist og segi við vini sína ,,elsku kallinn, þú ert flottur“.

Þetta gefur fyrirheit um betri tíma því fólk sem sendir frá sér hlýja strauma skapar andrúmsloft trausts og gleði.

Burt með kafbátana. Upp með kærleikann.

Því eins og segir í bókinni Orð í gleði ,,Ef hjartað er hlýtt og viljirðu vel, er veröldin björt og fögur.“

Maður étur ekki þá sem manni líður vel með. Kaldastríðsherrarnir vildu gleypa allan heiminn. En kannski dettur ungu kynslóðinni frekar í hug að skipta bara samlokunni á milli sín og borða hana saman.                                                                                Kær kveðja, Sirrý