Á ekki bara að skella sér á paul?

Það lifa bara tveir bítlar og annar er klárlega betri lagasmiður en hinn, æ fyrirgefðu Ringó; ballöðurnar hafa bara staðið svo upp úr félaga þínum Paul að ekki verður við annað jafnað í dægurlagasögunni. Og nú er karlinn heldur betur á ferðinni og virðist ætla að þreytast seint á giggum þessa lífs; stefnan er sett á Skandinavíu, kelduna hans Hróars í sumar – og eftir að Danir hafa legið í því er siglt yfir til Oslóar og þaðan til Stokkhólms í austri. Í þessari tónleikaferð McCartneys er engu til sparað – og nánast öllu flaggað sem hægt er að hafa við hún. Og þetta verður ekki sagt miklu oftar: Pantaðu miða, bæði flug og festival, af því að það fer hver að verða síðastur að upplifa upprunalegt bítl; maðurinn er jú að verða 72ja ára og þótt hann éti bara grænmeti út í eytt er hann dauðlegur eins og við hin.