Hatursfólk leoncie; makleg málagjöld!

Indverska prinsessan og söngdívan Leoncie hefur ákveðið að yfirgefa Ísland aftur. Hún reiknar með að verða flutt af landi brott fyrir næstu jól. Leoncie hafði búið á Íslandi í áratugi þegar hún fór héðan í nokkru fússi fyrir nokkrum árum, búin að fá nóg af Íslendingum, stöðugum árásum þeirra og því sem hún kallar rasisma.

Leoncie sneri aftur fyrir örfáum árum og hefur unað hag sínum ágætlega í Keflavík en telur tímabært að halda aftur út í heim, enda sé eftirspurnin eftir hæfileikum hennar þar mun meiri en hér.

Hún sagði í samtali við Tóta í síðdegisþættinum á Hringbraut FM 89.1 að þetta snerist ekki um að hún væri búin að fá nóg af Íslandi heldur hafi hún aldrei ætlað sér að setjast hér að aftur. Síðan er „nóg að gera hjá mér erlendis í tónlistinni og leiklistinni,“ sagði Leoncie.

Þá bætti söngkonan því við að „læknaþjónustan og heilbrigðiskerfið væri núll og nix,“ auk þess sem „síðasta ár hefur verið hundleiðinlegt.“ Ekki síst vegna þess hversu Ríkissjónvarpið er niðurdrepandi, bætti hún við og sagði landsmenn svo heimska að eltast við söngvakeppnir sem séu mjög í hávegum hafðar hjá íslenskum sjónvarpsstöðvum.

Leoncie segist hafa mátt þola árásir á Íslandi árum saman, ekkert breytist á Íslandi en að þeir sem hafi gert árásir á hana munu fá makleg málagjöld. Hún segist þó mjög hamingjusöm enda mikið að gerast hjá henni í útlöndum. Hún fari héðan glöð og voni að Íslendingar gleðjist líka.

Á Facebook-síðu sinni auglýsir Leoncie að nú séu því „síðustu tækifærin að sjá Icy Spicy, Indian Princess LEONCIE á Íslandi.“ Hún segist þó að sjálfsögðu munu koma hingað í heimsókn og halda tónleika.


Hlustið á þáttinn allan hér. (Viðtalið við Sturlu hefst uþ.þ.b. á mínútu 27:15)

Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.

Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.