Drekktu þetta og náðu 90 mínútna lengri svefn á nóttunni

Rannsókn hefur sýnt að ef þú drekkur þennan ákveðna drykk tvisvar á dag, þá áttu að ná allt að 90 mínútna lengri svefn á hverri nóttu. Frá þessu er greint á Heilsutorgi.is.

Og hver er svo þessi töfradrykkur?

Teymi af fólki sem vinnur við rannsóknir hjá Louisiana State University fékk sjö eldri borgara sem þjáðust af svefnleysi til að drekka 225 ml af kirsuberjasafa tvisvar á dag í tvær vikur. Í kjölfarið fylgdu aðrar tvær vikur þar sem þau fengu engan kirsuberjasafa og síðan fengu þau svokallaða lyfleysu til að drekka næstu tvær vikurnar.

Þegar þessar sex vikur voru svo bornar saman, þá kom í ljós að þær tvær vikur sem að þessir einstaklingar drukku kirsuberjasafann, náðu þeir að meðaltali 84 fleiri mínútum í svefn á hverri nóttu.

Kirsuberjasafi inniheldur nefnilega hið náttúrulega svefnvöku efni melatonin og aminosýruna tryptophan.

Þeir sem stóðu að þessari rannsókn vilja meina að allir sem eiga við svefnvandamál að stríða ættu að drekka kirsuberjasafa tvisvar á dag allt árið um kring.

Safinn er náttúrulegur, annað en svefnlyfin.

Ekki hrifin/n af kirsuberjum ?

Prufið þá kiwi. Já, kiwi.

Að borða tvö kiwi klukkustund fyrir svefn hefur sýnt að þú náir að sofa um 13% lengur en vanalega og minni hætta á að þú vaknir upp um miðja nótt, nema auðvitað að þú þurfir að pissa.

Hér má lesa fleiri greinar af Heilsutorgi.