Börn hjónanna Evu Hrundar Pétursdóttur og Kára Kárasonar sem urðu fyrir skotárás um helgina á Blönduósi segja í yfirlýsingu að líf þeirra hafi breyst til frambúðar á sunnudag og að það verði aldrei aftur eins.
Þau biðja um frið og segjast ekki ætla að tjá sig frekar um málið. Undir yfirlýsinguna rita börn hjónanna Sandra, Hilmar, Pétur og Karen.
„Á sunnudaginn breyttist líf okkar til frambúðar og verður aldrei aftur eins. Við syrgjum móður okkar og faðir okkar er alvarlega særður á spítala. Okkur hafa borist hlýjar kveðjur og stuðningur úr öllum landshornum. Fyrir það erum við þakklát,“ segja þau í yfirlýsingunni og að erfitt sé að ganga í gegnum þessa lífsreynslu og gagnrýna fjölmiðla.
„Það er enn þyngra þegar fjölmiðlar flytja rangar og villandi fréttir af atvikum og ganga nærri friðhelgi einkalífs okkar með myndbirtingum og síendurteknum hringingum í okkur, nánustu vini og ættingja,“ segja þau og biðja fjölmiðla að friðhelgi einkalífs þeirra, fjölskyldu og heimilis.
„Við þurfum frið til þess að takast á við þetta áfall, til að syrgja móður okkar og hlúa að föður okkar. Því í dag er ekkert mikilvægara en að hann nái heilsu á ný,“ segja þau og að þau muni ekki tjá sig frekar.
Yfirlýsinguna er hægt að sjá í heild sinni á vef Fréttablaðsins.