Wessman svarar fyrir sig og sver af sér innbrotið

Róbert Wessman, framkvæmdastjóri Alvogen og Alvotech, segir í yfirlýsingu að það sé fráleitt að hann tengist innbroti í bíl Reynis Traustasonar og á skrifstofu Mannlífs, sem Reynir ritstýrir. Hann segir að honum myndi aldrei detta í hug að beita þeim aðferðum sem sé hermt upp á hann í fjölmiðlum.

„Í gær var brotist inn á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs. Ég vona svo sannarlega að lögreglan taki málið föstum tökum og nái þeim sem þetta gerðu sem allra fyrst. Árásir á fjölmiðla eru aðför að lýðræðinu og eiga ekki að líðast,“ segir Róbert í tilkynningunni og að hann sé knúinn til að tjá sig um málið.

„Mér hefur þótt umfjöllun Reynis Traustasonar og Mannlífs um mig og þau fyrirtæki sem ég stýri afar óvægin, ófagleg og marg ítrekað ósönn. Ég hef ítrekað óskað eftir leiðréttingum á rangfærslum og að fá ákveðin persónugreinanleg gögn afhent. Hingað til hefur þó hvorki verið brugðist við óskum um leiðréttingar né afhendingu gagna,“ segir Róbert í yfirlýsingunni og að hann hafi kært umfjöllun Reynis og Mannlífs til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands

Nánar á vef Fréttablaðsins.

Fleiri fréttir