Páll Magnússon, fyrrverandi alþingismaður og útvarpsstjóri, deildi sögu af bankasölu á Facebook síðunni sinni þar sem hann segir frá vel stæðum kunningja sínum sem var boðið að græða tíu milljónir yfir nótt.
Hann skrifar að vinur hans hafi fengið símtal og boðið að taka snöggan snúning á Íslandsbanka. Hann gæti líklega orðið tíu milljónum ríkari fyrir vikið. Sá sem hringdi í hann var vinur kunningja Páls og starfsmaður hjá einum af söluaðilum bréfanna.
„Kunningi minn græddi um 10 milljónir á þessum tveimur símtölum; tæplega 1,5 milljónir á klukkutíma á meðan hann svaf,“ skrifar Páll og er svo harðorður í garð þeirra sem sáu um útboðið, „Svo komu menn hver um annan þveran; fjármálaráðherrann, Bankasýsluforingjarnir og jafnvel nokkrir þingmenn og útskýrðu fyrir okkur einfeldningunum hvað þetta hefði verið gríðarlega vel heppnað útboð. Einmitt."
Söguna í heild má sjá hér fyrir neðan: