Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands skýtur föstum skotum á þau stórfyrirtæki sem greiða sér út milljarða í arð á meðan verðlagshækkanir dynja á neytendum.
„Á þessu sést að arðsemisgræðgi stórfyrirtækja er að tröllríða íslensku samfélagi en eins og kemur fram í þessari frétt er verið að greiða 2 milljarða út í arðgreiðslum á sama tíma og verðlagshækkanir dynja á neytendum.“
Hann skrifar stöðuuppfærsluna á Facebok í kjölfar þeirra frétta að eigendur Haga og annara stórfyrirtækja stefna á að greiða sér út marga milljarða í arð, þrátt fyrir þær verðhækkanir sem hafa geyst á neytendur upp á síðkastið.
„Það er ekki bara að Hagar séu að græða stórkostlega þessi misserin því nægir að nefna að hagnaður Eimskips nífaldaðist á milli ára og nam tæpum 6 milljörðum á síðasta ári og því ljóst að stórfyrirtæki eru að nýta sér ástandið illilega sem bitnar eins og ætíð á íslensku launafólki, neytendum og heimilum.“
Þá segir hann sorglegt að aðaleigendur þessara stórfyrirtækja séu almennt lífeyrissjóðir launafólks „sem öskra á aukna arðsemi daginn út og inn og vilja meiri arð í dag en þeir fengu í gær.“
Hann segir einnig að það sé tímabært fyrir verkalýðshreyfinguna að segja hingað og ekki lengra og binda enda á þessa arðsemisgræðgi stórfyrirtækja sem níðast á neytendum.
„Það er orðið deginum ljósara að það hvarflar ekki að þessum stórfyrirtækjum að axla sína ábyrgð við þessar aðstæður og milda verðlagshækkanir með því að varpa ekki öllum hækkunum miskunnarlaust á herðar neytenda.“