Vill greiða þrettánda mánuðinn skerðingarlaust til þeirra fátækustu

Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins lagði til á þingi í dag að ríkisstjórnin myndi greiða þeim sem verst hafa það í samfélaginu þrettánda mánuðinn skatta- og skerðingarlaust.

„Hvernig myndi okkur hérna inni líða með það að vera með 3.500 kr. í mínus á mánuði eftir að hafa greitt öll föst útgjöld heimilisins,“ spurði hann og vísaði þar í ræðu sem Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingar hélt á þingi í gær um þann aukna fjölda sem hefur undanfarið leitað til Umboðsmanns skuldara.

„Ráðstöfunartekjur þeirra sem verst hafa það í okkar ríka samfélagi eru langt undir fátæktarmörkum og dragast saman ár eftir ár þannig að sárafátækasta fólkið okkar nær engan veginn endum saman,“ sagði Guðmundur Ingi og að margir séu í áfalli yfir miklum verðhækkunum á matvöru, húsnæði, leigukostnaði og öðrum nauðsynjum.

Hann segir að nærri hundrað einstaklingar hafi í október sótt um aðstoð vegna fjárhagsvanda til umboðsmanns skuldara í október sem sé tuttugu prósent aukning frá því í fyrra. Stærsti hópurinn er öryrkjar.

„Er ekki kominn tími til að borga út 13. mánuðinn skatta- og skerðingarlaust um næstu mánaðamót til aldraðs fólks og öryrkja í almannatryggingakerfinu?“ spurði Guðmundur Ingi og setti það í samhengi við jólabónus þingmanna sem þau fá í næsta mánuði.

Fleiri fréttir