Vill frysta laun borgarfulltrúa í ár og nota milljónirnar í eitthvað annað

Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti og borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins leggur til að laun borgarfulltrúa verði fryst í ár. Greint var frá því í vikunni að gerð yrði ráð fyrir milljarða halla í borginni á næsta ári.

Sanna segir að með því að frysta launin, sem eru vanalega hækkuð tvisvar á ári, sé hægt að spara azlls 29 milljónir.

„Sósíalistar munu leggja þetta til við gerð fjárhagsáætlunar. Laun taka mið af þróun launavísitölu og uppfærast í janúar og júlí ár hvert. Þegar efnahagsstaðan er eins og hún er og þegar laun okkar eru miklu hærri en laun annarra sem starfa hjá borginni, þá tel ég þetta eðlilegt. Frysta í eitt ár og nota 29 milljónirnar í eitthvað betra,“ segir Sanna.

Fleiri fréttir