Sara Óskarsdóttir leggur til í skoðanapistli á Vísi að skólahaldi sé frestað fram yfir bólusetningar yngsta hópsins. „Það kæmi í veg fyrir þá smitsprengju sem stefnir í, auk þess sem örmagna og úrvinda heilbrigðisstarfsfólk fengi aðeins að draga andann á milli tarna,“ skrifar hún.
Metsmittölur hafa verið að berast undanfarið og það á meðan enn er jólafrí í skólum. Sara segir að ef það sé eitthvað til að miða við þá sé „ekki von á góðu í næstu viku.“
Sara segir það óþolandi að ekki hafi verið sett upp sérstök Covid-19 heilbrigðisstofnun. „Sú staðreynd lýsir í hnotskurn þeirri krónísku vanhæfni og þeim pínlega skorti á langtímahugsun sem er við líði í íslenskum stjórnmálum. Það er jú gömul saga og ný..,“ skrifar hún.
Pistilinn í heild sinni má lesa hér.