Vill bruðlið burt: „Hægt er að reka borgina betur“

Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, segir að borgin geti verið rekin betur og kallar eftir breytingum í næstu borgarstjórnarkosningum í maí.

„Flokkur fólksins kallar eftir að borin sé meiri virðing fyrir verðmætum í borginni. Margar fjárfestingar borgarinnar eru í senn ómarkvissar og óhagkvæmar og staðið er í samkeppnisrekstri sem ætti að vera utan verkahrings borgarinnar,“ segir Kolbrún í pistli í Fréttablaðinu í dag.

Þar bendir hún til dæmis á GAJU sem er nú óhothæf og óljóst hvenær hún verður virk og á innleiðingu stafrænna lausna sem hefur tafist mikið að hennar sögn.

„Hægt er að reka borgina betur. Það er eins og það gleymist að verið er að sýsla með skattfé borgarbúa,“ segir Kolbrún í pistlinum sem er hægt að lesa í heild sinni hér.

Fleiri fréttir