Maríanna Pálsdóttir snyrti- og förðunarfræðingur segir fegurðarsamkeppnir barn síns tíma og leggur til að þær verði lagðar af. Það gerir hún í sínum nýjasta vikulega pistli á vef DV.
„Ég ætla svo sem ekki mikið að skrifa um það en við öll vitum út á hvað það gengur og flest okkar hljóta að vera sammála um að sú formúla sem er notuð til að meta manneskju fallegasta er ekki til. Þegar ég bjó í sveitinni man ég eftir hrútasýningum sem haldnar voru reglulega, þá var sá hrútur sem þótti veglegastur verðlaunaður. Alsæll eigandi hrútsins fékk styttu af hrút í verðlaun. Mér þykir margt líkt með þessu og fegurðarsamkeppnum, nema að hrútasýningarnar eru örlítið gáfulegri og á ég ekki að þurfa að útskýra af hverju,“ segir hún í pistlnum.
Maríanna segir að þegar öllu er á botninn hvolft á sé ekki hægt að skilgreina fegurð á einn hátt.
„Hvert og eitt okkar er fallegt á sinn hátt og það sem ég sé, sér kannski enginn annar. Getur skíthæll talist fallegur í einhverjum skilningi eða er smáfríður einstaklingur sem níðist á öðrum mjög fallegur? Hættum að keppast um fegurð, punktur,“ segir Maríanna í pistlinum sem má lesa hér.