Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, fer ekki fögrum orðum um Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, eða Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, í viðtali á Fréttavaktinni á Hringbraut í kvöld.
Hann segir að svo virðist sem Sólveig hafi leikið mikilvægum upplýsingum um kjaraviðræður sínar við SA á viðkvæmum tíma.
„Þeim upplýsingum sem ég hafði veitt þeim var leikið til fjölmiðla. Ég fæ bara þá tilfinningu að það hafi verið gert til að skemma og afvegaleiða það sem við vorum að gera. Ég er pínu sár yfir því. Samstarf fólks byggist upp á trausti, trúnaði og heiðarleika,“ segir Vilhjálmur
Þegar hann er inntur eftir frekari svörum bætir hann við „Já ég er dáldið illa svikinn. Ég myndi aldrei nokkurn tíman gera félögum mínum það að leka upplýsingum á viðkvæmum tímum í kjaraviðræðum.“
Vilhjálmur segir að einungis tíminn muni leiða í ljós hvort það muni gróa um heilt í þessum samböndum.