Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins minnti á dag eineltis í ræðu sinni á þingi í dag í umræðum um störf þingsins.
Hann sagði mikilvægt að ræða aðgerðir gegn einelti og að hluti væri vinátta og jákvæð samskipti. Hann sagði að á Alþingi væri mikilvægt að taka þetta til greina, eins og annars staðar.
„Ég held að það sé ekki síður mikilvægt að við ræðum aðgerðir gegn einelti hér,“ sagði Vilhjálmur og að allir á þingi og aðrir sem taka þátt í opinberri umræðu ættu að tileinka sér heiðarlegt og virðingarvert tungutak og ættu ekki að vera með sleggjudóma og ljót orð um náungann.
„Ég er ekki að segja að við stjórnmálamenn séum að vera fyrir einelti,“ sagði Vilhjálmur og að þingmenn, og aðrir, ættu að hafa það í huga að börnin læra það sem fyrir þeim er haft og miða ætti við það.