Veitingafólk vongott fyrir sumarið

Veitingafólk á höfuðborgarsvæðinu er vongott fyrir sumarið. Ingunn Lára Kristjánsdóttir blaðamaður ræddi við Hrefnu Rósu Sætran á Grillmarkaðnum, José Garcia á Caruso, Chandriku Gunnarsson á Hraðlestinni og Jakob Magnússon á Horninu.

Staðan hefur að sjálfsögðu verið hörð í veitingabransanum vegna samkomu- og ferðabanns í kórónaveirufaraldrinum. Eigendur veitingastaða hafa þurft að aðlaga sig að nýjum tímum og hefur þá verið nauðsynlegt að breyta rekstri.

Chandrika Gunnarsson, sem rekur Hraðlestina og Austur-Indíafjelagið, segir aðstoð ríkisstjórnarinnar hafa hjálpað mig. Ákveðið var að leggja aukna áherslu á sendingarþjónustu hjá Hraðlestinni þegar ljóst var í byrjun mars að samkomubannið myndi skella á. Chandrika segir það hafa bjargað rekstrinum. Hún hafi þó þurft að minnka starfshlutfall starfsmanna og var hún að keyra út mat ásamt fjölskyldu sinni.

Jakob Magnússon á Horninu missti hluta af starfsólki sínu; þá sérstaklega erlent starfsfólk sem flaug heim þegar kórónaveirufaraldurinn var farinn að breiða úr sér. Hann segir íslenska matarmenningu hafa breyst mikið síðastliðin ár; Íslendingar fari meira út að borða.

José Gracia þurfti að loka veitingastaðnum sínum, Caruso á Austurstræti, tímabundið vegna samkomubannsins. Hann segist einnig vera vongóður og hlakki til að sjá ferðamenn aftur. Ástandið hafi verið sérstaklega erfitt en nú sé kominn tími til að spila tónlist í portinu á milli Caruso og Grillmarkaðarins þar sem er gott skjól til að sitja úti að borða og drekka.

Hrefna Rósa Sætran hjá Grillmarkaðnum hefur nú sameinað Fiskimarkaðinn og Grillmarkaðinn. „Svona tveir fyrir einn,“ segir Hrefna. Ástandið hafi verið erfitt en þó hafi verið einhver viðskipti þar sem Grillmarkaðurinn bauð upp á heimasendingu. Hrefna segist taka eftir því að Íslendingar séu komnir í sumargírinn og séu nú að kíkja meira út að borða. Ávallt sé passað upp á tvo metra, að sjálfsögðu.

Nánar um þetta í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.

Fleiri fréttir